Nýherji kynnti í dag nýtt skipulag fyrir starfsemi félagsins. Með breytingunni er horft til þess að auka hagkvæmni í rekstri og efla áherslu á þróun og sölu lausna, mannauðsmál og þjónustu við endursöluaðila. Breytingin felur í sér stóraukna áherslu á sölustarf þar sem  tæknimenn og sölufólk vinna innan sama tekjusviðs að þróun lausna og í sölu- og markaðssetningu, að því er segir í tilkynningu. Tekjusvið félagsins verða tvö, Lausnir og þjónusta og Heildsala og dreifing. Við breytinguna fækkar starfsmönnum Nýherja um 10. Breytingar á skipulagi ná ekki til dótturfélaganna; TM Software, Applicon og Applicon AB. Nýtt skipulag Nýherja tekur gildi frá 1. október næstkomandi.

Tveir starfsmenn taka sæti í framkvæmdastjórn Nýherja í tengslum við breytingarnar;  Þorvaldur Þorláksson, framkvæmdastjóri Heildsölu og dreifingar, og Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri.

Í framkvæmdastjórn Nýherja sitja þau Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, Gunnar Zoëga, framkvæmdastjóri Lausna og þjónustu, Þorvaldur Þorláksson, framkvæmdastjóri Heildsölu og dreifingar, Emil G. Einarsson, framkvæmdastjóri Viðskipta- og þjónustustjórnunar, Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs, og Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri.