Slitastjórn Kaupþings tilkynnti rétt í þessu að hún hafi ákveðið að rifta niðurfellingu á persónulegri ábyrgð 80 fyrrum starfsmanna gamla Kaupþings. Starfsmennirnir fengu um 32 milljarða króna að láni til að kaupa hlutabréf í bankanum sjálfum. Stærstu lánin voru til helstu stjórnenda bankans: Sigurðar Einarsson og Hreiðars Más Sigurðssonar. Lán til Sigurðar voru á hans eigin nafni og því mun slitastjórnin ganga á hann persónulega til að reyna að fá lánið greitt. Hreiðar Már var með sín lán inni í eignarhaldsfélagi og getur því látið það fara í þrot í stað þess að borga. Slitastjórnin ætlar að reyna að rifta tilfærslum á lánunum yfir í eignarhaldsfélög.

Tilkynning slitastjórnar Kaupþings:

Niðurfellingu á persónulegum ábyrgðum rift

Slitastjórn Kaupþings banka sendi í morgun um 80 starfsmönnum gamla Kaupþings tilkynningu um riftun á niðurfellingu persónulegra ábyrgða vegna lána sem bankinn veitti þáverandi stjórnendum og lykilstarfsmönnum til hlutabréfakaupa í Kaupþingi. Niðurfellingin var ákveðin af stjórn Kaupþings banka þann 25. september 2008. Heildarfjárhæð lánanna sem um ræðir er hátt í 32 milljarðar króna. Tæplega 15 milljarðar voru veittir að láni með persónulegri ábyrgð. Langstærsti hluti lánanna var veittur yfirstjórnendum bankans. Til marks um það má nefna að um 20 fyrrum starfsmenn skulda bankanum tæp 90% heildarfjárhæðarinnar en þeir voru flestir lykilstjórnendur bankans og hafa allir látið af störfum.

Lán til hlutabréfakaupa starfsmanna

Forsaga málsins er sú að Kaupþing banki gerði, einkum á árunum 2005–2007, kaupréttarsamninga sem m.a. fólust í því að bankinn veitti starfsmönnum sínum lán til hlutabréfakaupa í bankanum, með veði í bréfunum sjálfum. Starfsmenn voru í persónulegri ábyrgð að fullu eða að hluta. Í flestum tilvikum voru lánasamningar á þann veg að skuld viðkomandi var ekki komin á gjalddaga þegar Kaupþing féll 8. október 2008. Fyrir liggur að hlutabréfaeign starfsmanna í bankanum er verðlaus og veðin fyrir lánunum einskis virði.

Í september 2008 höfðu fjármál starfsmanna Kaupþings verið til umfjöllunar hjá starfskjaranefnd bankans. Þar kom fram að það væri mat nefndarinnar að sumir lykilstarfsmanna bankans væru í verulegum fjárhagsörðugleikum vegna lækkandi gengis á hlutabréfum bankans. Það væri mikilvægt að lykilstarfsmenn bankans gætu einbeitt sér að hlutverki sínu og það væri jafnframt mat nefndarinnar að leiðrétta ætti hlut þeirra. Á stjórnarfundi í Kaupþingi banka hinn 25. september 2008 voru þessi lán starfsmanna bankans til umfjöllunar. Á fundinum samþykkti stjórnin að veita Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrum forstjóra, heimild til þess að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna á lánum vegna hlutabréfakaupa í bankanum og takmarka ábyrgð þeirra framvegis við veðsett hlutabréf.

Slitastjórn Kaupþings telur að niðurfelling persónulegrar ábyrgðar sé gjafagerningur í skilningi gjaldþrotalaganna og að auki til þess fallin að rýra hlut kröfuhafa bankans. Því hefur verið tekin ákvörðun um að rifta þessum gerningum og hafa viðkomandi einstaklingum og félögum verið send riftunarbréf þess efnis. Verði ekki gerð skil innan 10 daga frests mun slitastjórn Kaupþings stefna viðkomandi málum fyrir dóm.

Riftun á flutningi lána í einkahlutafélög

Flestir starfsmenn bera persónulega ábyrgð á lánum sem þeir tóku hjá bankanum að öllu leyti eða að hluta. Snemma árs 2006 veitti FME heimild til þess að starfsmenn færðu lán vegna hlutabréfakaupa í einkahlutafélög. Liðlega 10 þeirra starfsmanna sem um ræðir nýttu sér þessa heimild og fluttu skuldir sínar við bankann vegna hlutabréfakaupa úr persónulegri eigu í einkahlutafélög. Slitastjórn Kaupþings mun leita allra leiða til að rifta flutningi lána í einkahlutafélög.