Stefán Árni Auðólfsson, lögfræðingur hjá Lögmönnum Bankastræti, tekur sæti Guðbrands Sigurðssonar, forstjóra Plastprents, í stjórn Haga á næsta aðalfundi félagsins. Fimm gefa kost á sér í fimm stjórnarsæti hjá Högum. Framboðsfrestur er útrunninn og er því sjálfkjörið í stjórnina.

Aðrir sem gefa kost á sér sátu áður í stjórn Haga. Þau eru stjórnarformaðurinn Árni Hauksson og Friðrik Hllbjörn Karlsson auk þeirra Kristínar Friðgeirsdóttur, lektor í stjórnunar- og rekstrarfræðum við London Business School, og Erna Gísladóttir, forstjóri og eigandi bílaumboðsins BL. Hún er jafnframt ræðismaður Suður Kóreu á Íslandi.

Aðalfundur Haga verður haldinn á föstudaginn kemur, þ.e. 7. júní 2013.