Stefanía Sigurðardóttir, hefur verið ráðinn kosningastjóri Viðreisnar. Hún var meðal annars í kosningastjórn nýkjörins forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar. Þetta kemur fram í frétt á vef Viðreisnar .

Stefanía hefur meðal annars verið virk í starfi Sjálfstæðisflokksins og starfar hún nú sem viðburðarstjóri hjá Háskólanum í Reykjavík.

Tekið er fram í fréttinni að það hafi löngum verið vilji Stefaníu að móta íslenskt samfélag. Haft er eftir henni að hún vilji leggja áherslu á það að móta opið, umburðarlynt og frjálslynt samfélag.