Samkvæmt upplýsingum úr skýrsluhaldi Bændasamtaka Íslands hefur ásetningur kúabænda á nautkálfum aukist verulega frá fyrri árum. Ef litið er til niðurstaðna ársins 2004 miðað við fyrra ár nemur aukningin 13,2%. Vænta má þess að innan tveggja ára megi sjá áhrif þessa í kjötframleiðslunni. Líklegar skýringar fyrir auknum ásetningi eru betri markaðsstaða nautakjöts hérlendis en verið hefur til margra ára og mikil eftirspurn sláturleyfishafa eftir nautgripum í slátrun.