Upplýsingar um skuldastöðu  þjóðarbúsins sem Seðlabankinn er að taka saman verða væntanlega birtar í dag, samkvæmt upplýsingum úr Seðlabankanum.

Þessar upplýsingar voru kynntar þingnefndum í gær en fulltrúar bankans báðu þingmenn um að halda þeim leyndum.

Samkvæmt upplýsingum úr Seðlabankanum er ekki verið að breyta neinum útreikningum heldur er verið að vinna að því að setja upplýsingarnar fram á aðgengilegan hátt.

Vonir standa til að það náist í dag.