Steingrímur J. Sigfússon boðaði afar harðar aðgerðir í aðhaldi í ríkisfjármálum í niðurlagi ræðu sinnar á fundi Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands í gær.

„Það er staðreynd að við verðum að afla ríkisjóði tekna, til að gera tvennt. Að standa undir sameiginlegum markmiðum og við verðum að nota tekjur að einhverju leyti upp í því að komast út úr hallarekstri ríkissjóðs því annars förum við á hausinn. Við verðum að stíga “mjööög” fast á fótinn, hvað varðar samdrátt í útgjöldum núna annað árið eða í raun og veru þriðju umferð með fjárlagafrumvarpinu sem kemur núna á næstu dögum. Þar sem þrír fjórðu aðgerðanna verða samdráttur, niðurskurður útgjalda, aðgerðir til að koma í veg fyrir útgjöld.

Ég vil gefa þá yfirlýsingu hér fyrir mitt leyti, að gangi það að mestu leyti eftir hjá okkur þá séum við komin að neðri mörkum þess sem er félagslega gerlegt og efnahagslega vitrænt. Þá held ég að aðlögunin  á þá hlið sé orðin svo mikil að við þurfum að fara að hafa verulegar áhyggjur af því hvaða áhrif  það hefur, ekki bara á velferðarsamfélagið, heldur líka á eftirspurn í samfélaginu ef við færum að ganga lengra en það. Þannig að restin af aðlöguninni á árinu 2012 og 13 verður þá aðallega að koma á tekjuhlið og þá vonandi á batnandi gengi okkar allra.”

Steingrímur sagðist líka ekkert vera feiminn við að skoða breytingar sem orðið hafa á skattkerfinu í sinni tíð, komi í ljós að þær hafi verið misráðnar eða að aðrar leiðir séu tæknilega betri.

„Það er enginn minni maður þó hann viðurkenni að það hafi kannski einhver mistök orðið. Kannski megi fara aðrar leiðir til og ná markmiðunum. Ég held þó að það sem við öll þurfum að gera er að horfast í augu við ískaldann veruleikann og láta allar kreddur og óskhyggju lönd og leið.”