Stekkur efh. hefur keypt 18,84% hlut í Fiskmarkaði Íslands í viðskiptum að nafnvirði 13.397.900, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Kaupverðið er 5,4 krónur á hlut.

Seljandinn er Jón Ásbjörnsson. Ekki eru frekari upplýsingar að finna í tilkynningunni frá seljandanum.