Danska lággjaldaflugfélagið Sterling mun hefja bent flug til borgarinnar Biarritz á suður Frakklandi þann 14. maí, samkvæmt upplýsingum frá flugyfirvöldum í Kaupmannahöfn.

Sterling, sem er í eigu íslenska eignarhaldsfélagsins Northern Travel Holding, mun fljúga tvisvar í viku til borgarinnar, sem er sjötti áfangastaður flugfélagsins í Frakklandi.