Stjórn Nýja Kaupþings banka hf. unir ekki sölu stjórnar Exista hf. á nýjum hlutum í félaginu til Kvakks ehf./BBR ehf., eignarhaldsfélags í eigu stjórnarformanns Exista og bróður hans á því er segir í yfirlýsingu bankans.

Stjórn bankans hafði undirbúið ferli sem miðaði að því að taka yfir stjórn Exista í því skyni að verja hagsmuni bankans.

Síðastliðinn sunnudag upplýsti Kaupþing stjórnarformann Exista um þessi áform bankans og óskaði jafnframt eftir að boðað yrði til hluthafafundar hjá félaginu. Þessari ósk var fylgt eftir formlega með bréfi frá Kaupþingi í morgun.

Stjórn Nýja Kaupþings gerir alvarlegar athugasemdir við þessi vinnubrögð stjórnar Exista og mun leita allra leiða til að fá þessum áformum hnekkt.