Að sögn bandaríska dagblaðsins  The Wall Street Journal bendir flest til að Stan O’Neal víki sem forstjóri Merrill Lynch í vikunni.

Stjórn fyrirtækisins sat á fundi um helgina þar sem farið var yfir stöðuna og ákveðið hvort O’Neal skildi víkja eða ekki.

Þrátt fyrir að ekki hafi en verið gefin út yfirlýsing um niðurstöðu fundarins er talið víst að O’Neal verði látinn víkja.