Stöð 2 og Luxor tækjaleiga ehf hafa undirritað samstarfssamning um að fyrirtækin vinni saman á næstu árum við framleiðslu á íslensku sjónvarpsefni, en félögin hafa unnið saman undanfarið í kjölfar útbreiðslu kórónuveirufaraldursins.

Luxor mun útvega ljósa-, hljóð- og sviðsbúnað í framleiðsluverkefni Stöðvar 2 ásamt því að tæknimenn frá Luxor munu vinna að upptökum og útsendingum stöðvarinnar. Þar að auki munu starfsmenn Luxor hanna leikmyndir og lýsingu fyrir Stöð 2.

„Samstarfið við Luxor hefur verið virkilega ánægjulegt og þetta samkomulag mun efla innlenda framleiðslu í myndverunum sem við höfum byggt upp í höfuðstöðvum Stöðvar 2 á Suðurlandsbraut enn frekar,“ segir Eva Georgs Ásudóttir, framleiðslustjóri Stöðvar 2.

Karl Sigurðsson framkvæmdastjóri Luxor segir félagið hafa sinnt þessari þjónustu fyrir Stöð 2 undanfarna mánuði.

„Eftir að Covid skall á hefur framleiðsla á Íslensku efni, sem tekið er upp í myndveri Stöðvarinnar, stóraukist og á tímabili fórum við saman í eina nýja framleiðslu í hverri viku. Samningurinn mun að miklu leyti taka utan um þá þjónustu,“ segir Karl.

„Við sérhæfum okkur meðal annars í þjónustu við sjónvarpsframleiðslu, auk þess að vinna að lifandi viðburðum, tónleikum oþh. Sá iðnaður hefur að mestu legið niðri síðan í byrjun mars. Það er því engum blöðum um það að fletta að þessi samningur er þýðingarmikill fyrir okkur á þessum tímapunkti, og við erum þakklátir fyrir það traust sem okkur er sýnt.“