Reykjavíkurborg, ríkið og KSÍ hafa stofnað undirbúningsfélag um uppbyggingu nýs Laugardalsvallar, sem skal skila af sér fyrir árslok. Kemur skipun félagsins í kjölfar þess að starfshópur ríkis og borgar hefur skilað af sér tillögum um uppbyggingu ný Þjóðarleikvangs í Laugardalnum. Hér má lesa skýrsluna í heild sinni.
Eru helstu niðurstöður starfshópsins þær að:
- Margt mælir með því að núverandi þjóðarleikvangur í Laugardal verði endurnýjaður.
- Ríkið, Reykjavíkurborg og KSÍ stofni undirbúningsfélag um mögulega framkvæmd og taki upp viðræður um eignarhald á þjóðarleikvangnum.
- Undirbúningsfélagið bjóði út samning um endanlega þarfagreiningu, skipulagningu verkefnisins, kostnaðaráætlun og gerð útboðsgagna.
- Þjóðarleikvangur getur hvort heldur sem er verið opinn knattspyrnuvöllur eða fjölnotaleikvangur með opnanlegu þaki.
- Kostnaður og áhætta við fjölnotaleikvang er vel umfram kostnað og áhættu við opinn knattspyrnuvöll.
- Ákvörðun um byggingu og eignarhald þjóðarleikvangs verði tekin með hliðsjón af niðurstöðu vinnu undirbúningsfélags og stöðu opinberra fjármála.
- Áætlað er að undirbúningi fyrir ákvörðun verði lokið í lok árs 2018.
- Verði tekin ákvörðun um byggingu þjóðarleikvangs getur útboðsferli framkvæmda tekið frá nokkrum mánuðum og upp undir eitt ár og framkvæmdatími verið að minnsta kosti tvö ár.
- Huga verður að mögulegu fordæmi ákvörðunar um byggingu þjóðarleikvangs fyrir aðrar íþróttagreinar með hliðsjón af væntanlegri reglugerð um þjóðarleikvanga.
- Hvetja ætti til opinnar umræðu um byggingu þjóðarleikvangs á grundvelli þeirra ítarlegu gagna sem tekin hafa verið saman á undanförnum misserum.