Uppgjör Stoða (FL Group hf.) fyrir árið 2008 mun ekki verða birt 30. apríl eins og áður hefur verið tilkynnt um.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag en á grundvelli laga um verðbréfaviðskipti er félögum sem eingöngu hafa skráð skuldabréf heimilt að birta ekki uppgjör í Kauphöll að því gefnu að lágmarksfjárhæð hvers skuldabréfs sé a.m.k. 50.000 EUR að nafnvirði á útgáfudegi bréfanna.