Félagið ML 102 ehf. tapaði rétt rúmum 19.500 krónum á síðasta ári. Þetta er sambærilegt tap og árið 2012. ML 102 ehf. er í eigu félagsins Moon Capital sem skráð er í Lúxemborg. Það félag er svo aftur í eigu Ingibjargar S. Pálmadóttur en hún situr ein í stjórn þess. Ingibjörg er aðaleigandi 365 miðla.

Fram kemur í nýbirtum ársreikningi ML 102 ehf. að eigið fé þess hafi undir lok síðasta árs numið tæpum 80 milljónum króna. Skuldir voru litlar sem engar eða upp á næstum 75 þúsund krónur. Eina eign félagsins er 25,81% A-hlutabréfa í 365 en félög Ingibjargar eiga 90% bréfanna og 100% B-hlutabréfa. Nafnverð hlutanna er 599,9 milljónir króna en bókfært verð nam 80 milljónum króna. Hlutabréfin eru veðsett Landsbankanum.