Krónubréf að nafnvirði 29 milljarða króna falla á gjalddaga í dag að viðbættum vöxtum. Um er að ræða flokk krónubréf sem Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) gaf út.

Greining Glitnis segir frá því í Morgunkorni í dag að heildarútistandandi krónubréf nemi nú 277 milljörðum króna og hafi staðan ekki verið lægri síðan í desember árið 2006.

Í Morgunkorni segir einnig að það sem eftir lifir mánaðar falli krónubréf að nafnvirði 16 milljarða króna á gjalddaga auk vaxta. Í nóvember og desember falli svo krónubréf að nafnvirði 14 milljarða króna til viðbótar á gjalddaga.

„Frá því að þrenginga fór að gæta á innlendum markaði með gjaldmiðlaskiptasamninga í byrjun mars á þessu ári hafa verið gefin út krónubréf að nafnvirði 20 ma.kr. Á sama tíma hafa krónubréf að fjárhæð 139,5 ma.kr. fallið á gjalddaga. Það hefur því undið hratt ofan af krónubréfastöðunni á árinu. Þegar mest var, í ágúst á síðasta ári, nam staða útistandandi krónubréfa 443 mö.kr., eða um þriðjungi af landsframleiðslu síðasta árs," segir í Morgunkorni Glitnis.

Komi ekki til frekari krónubréfaútgáfu á árinu muni heildarútistandandi krónubréf nema samtals 247 milljörðum króna í árslok.