Bílasala jókst mikið í mars samkvæmt nýjum sölutölum stærstu bandarísku bílaframleiðandanna.

Chrysler Group seldi 34% fleiri bíla í mars en mánuðinn á undan. Er þetta mesta sala bílaframleiðandans síðan í mars 2008, eða í 4 ár.

Sala General Motors, stærsta bílaframleiðanda heims var einnig góð í mars. Seldi GM 12% fleiri bíla en mánuðinn á undan.

Ford Motor var með minnstu aukningu meðal þriggja stærstu framleiðandanna. Salan jókst um 5% milli mánaða.

Jeep Grand Cherokee 2011
Jeep Grand Cherokee 2011
© Aðsend mynd (AÐSEND)