Stjórn Strætó bs. hefur tekið þá ákvörðun að selja Mercedes Benz bifreiðina sem fyrirtækið keypti í sumar handa Reyni Jónssyni, forstjóra Strætó.

Í Fréttablaðinu í dag er greint frá því að ákvörðun um að selja bílinn hafi verið tekin á stjórnarfundi fyrirtækisins á miðvikudag.

Kaupin voru hvorki borin undir stjórn né stjórnarformann og eru ekki í samræmi við eigendastefnu fyrirtækisins, að því er fram kemur í bókun stjórnar frá fundinum.

Bifreiðin sem um ræðir er jeppi af árgerðinni 2014 og var keypt á 10,2 milljónir króna. Söluaðilinn var bílaleigan Hertz.