Fyrirspurnir til leitarvélar Google eru harla örugg vísbending um hvert áhugi heimsbyggðarinnar beinist dag frá degi eða ár frá ári. Þess vegna er einkar fróðlegt að athuga á vef Google Trends hvernig áhuga umheimsins á Íslandi hefur verið háttað umliðin ár, en hér hefur á ýmsu gengið, eins og menn þekkja.

Enginn viðburður kemst í námunda við gengi íslenska landsliðsins í fótbolta undanfarna daga. Jafnvel sjálfur Eyjafjallajökull með allan sinn öskustrók og röskun á farþegaflugi náði ekki nema ¾ af athyglinni, sem strákarnir okkar hafa fangað. Önnur eldgos, bankahrun og það allt er eins og suð hjá því.

Google leit Ísland
Google leit Ísland
© vb.is (vb.is)