Þann 14. febrúar síðastliðinn náðu starfsmenn álversins í Straumsvík þeim einstaka árangri að unnar hafa verið þrjár milljónir vinnustunda án þess að orðið hafi alvarlegt vinnutengt slys.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá álverinu og tekið fram að þetta eru slys í flokki 1 og 2 samkvæmt alþjóðlegum slysaskilgreiningum sem ISAL styðst við og notaðar eru hjá sambærilegum fyrirtækjum víða um heim.

Árlega vinna starfsmenn álversins og verktakar á athafnasvæðinu um eina milljón vinnustunda.

„Árangurinn má einkum rekja til þrotlausrar vinnu starfsmanna og vilja þeirra til að gera stöðugt betur þegar kemur að öryggismálum,” segir Halldór Halldórsson leiðtogi öryggismála og eldvarna hjá ISAL í tilkynningunni.

Mestur viðsnúningur varð að sögn Halldórs árið 1998 þegar átak var gert til að sporna við vinnutengdum slysum með markvissum hætti.

„Í því felst meðal annars að starfsmenn tilkynna um allt sem þeir telja að megi betur fara í vinnuumhverfinu hvað varðar öryggi og skrá öll öryggistengd atvik. Þar má nefna skyndihjálparslys í flokki 4 og svonefnd “hér-um-bil-slys”, þ.e.a.s. tilvik þar sem legið hefur við slysi. Allmörg hér-um-bil-slys voru tilkynnt á liðnu ári og 30 minniháttar óhöpp samkvæmt flokki 4. Allar slíkar tilkynningar eru greindar og í kjölfarið er gripið til viðeigandi fyrirbyggjandi aðgerða í því skyni að auka öryggi starsmanna enn frekar,“ segir Halldór.

Í tilkynningunni kemur fram að öll störf hjá ISAL hafa verið áhættugreind og öryggisreglur uppfærðar með hliðsjón af þeirri greiningu.

„Síðast en ekki síst hefur innleiðing á vottuðu öryggisstjórnunarkerfi gert starfsmönnum kleift að viðhalda góðum árangri, ásamt því sem reglulega eru sett ný markmið um að gera enn betur,“ segir í tilkynningunni.