Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. hefur undirritað sambankalán að fjárhæð 400 milljónir evra og er lánið með breytilegum vöxtum til eins og þriggja ára segir í frétt í kauphöllina.

Eins árs hluti útgáfunnar, að fjárhæð 77 milljónir evra, var verðlagður á 35 punktum yfir EURIBOR vöxtum og þriggja ára hlutinn, að fjárhæð 323 milljónir, evra var verðlagður á 67,5 punktum yfir EURIBOR vöxtum.

Í fréttinni kemur fram að veruleg umfram eftirspurn var fyrir þátttöku í láninu og var það í kjölfarið hækkað úr 175 milljónum evra í 400 milljónir evra. BayernLB, Commerzbank, Fortis bank og RZB leiddu lánið en alls voru 29 bankar frá 13 löndum sem tóku þátt.