Straumur fjárfestingabanki hefur aukið við hlutafé sitt um 500 milljónir króna. Fjórir stærstu eigendur bankans keyptu 65% hlutanna og starfsmenn keyptu 35%. Fjórir stærstu hluthafarnir eru Sigla ehf., Varða Capital ehf., Ingimundur ehf., og Eignarhaldsfélagið Mata hf.

„Síðastliðið sumar var 65% hlutur í bankanum seldur til nýrra hluthafa og í kjölfarið keypti Straumur virka eignarhluti í  MP banka og Íslenskum verðbréfum. Tilgangur nýafstaðinnar hlutafjáraukningar er að styðja við áform félagsins um áframhaldandi ytri vöxt," segir í tilkynningu á vef Straums.

„Þetta er góður endir á viðburðaríku ári.  Afkoma Straums er góð  og augljóst að bæði hluthafar og starfsfólk hafa mikla trú á tækifærum bankans til að efla sig og styrkja á næstu árum.  Það er gaman að heilsa nýju ári með  þetta nýja afl og mikla metnað  í farteskinu," segir Jakob Ásmundsson, forstjóri Straums.