Fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Straumur fjárfestingabanki hf., Sigla ehf. og Arkur ehf., séu hæf til að fara með virkan eignarhlut í MP banka sem nemur 25%.

Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í lok október keypti Straumur fimmtungshlut í MP banka. Fjármálaeftirlitið hefur metið að samstarf sé um hinn virka eignarhlut á milli Straums, sem eignast hefur 19,54% í bankanum, Siglu, sem átti fyrir 0,94% hlut og Arks, sem átti fyrir 2,56% hlut í bankanum. Samstarfið telst vera til staðar vegna eigna- og stjórnunartengsla sem eru með aðilunum.