Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf., Fríhöfnin ehf, Flugmálastjórnin í Keflavík og Golfklúbbur Suðurnesja söfnuðu 400.000 kr. á sameiginlegu golfmóti þann 22. ágúst 2008 fyrir Lund, forvarnarfélag gegn vímuefnum

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu.

Þar segir að 128 þúsund krónur söfnuðust á 6. og 18. holu, en þar höfðu þátttakendur tækifæri til þess að kaupa högg af atvinnukylfingi sér til framdráttar.

Þátttakendur tóku þessu fagnandi og nýttu allir tækifærið til að styðja gott málefni. GS lagði til kylfinga, þá Örn Ævar Hjartarsson og Ólaf Jóhannesson

Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf., Fríhöfnin ehf, Flugmálastjórnin í Keflavík lögðu fram 272þ. krónur til viðbótar við þá upphæð sem safnaðist í leiknum.