Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) fagnar því að rætt sé um stöðvun á byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SUS en stjórn sambandsins tekur undir ummæli þeirra þingmanna sem telja að hætta eigi við byggingu þess.

„Sambandið lagðist alfarið gegn því á sínum tíma að ráðist yrði í þessar framkvæmd m.a. annars á þeim forsendum að illa væri farið með skattfé að ráðast í jafn dýrt verkefni og áætlanir gerðu ráð fyrir,“ segir í tilkynningunni.

„Þá var afgangur á fjárlögum. Líkt og svo oft áður þegar hið opinbera hefur ráðist í framkvæmdir, er nú ljóst að kostnaðaráætlanir standast ekki og líkur eru á að kostnaðurinn aukist enn meir. Á sama tíma hefur fjárhagsstaða ríkisins og Reykjavíkurborgar, snarversnað og ljóst er að ráðast þarf í mikla útgjaldalækkun á báðum stöðum. Stjórn SUS telur það almenna skynsemi að byrja á því að skera niður það bruðl og þá óráðsíu sem einkennt hefur þessa framkvæmd.“