Svala Ísfeld Ólafsdóttir hefur verið skipuð formaður refsiréttarnefndar og tekur hún við af Róbert Spanó. Svala hefur lokið embættisprófi (cand. jur.) í lögfræði sem og réttindum til málflutnings fyrir héraðsdómi. Þá er hún einnig með BA-gráðu í frönsku og MA-gráðu í félagsfræði.

Hún hefur verið sérfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík frá árinu 2003. Í refsiréttarnefnd eiga sæti auk Svölu Ísfeld, Egill Stephensen saksóknari, Símon Sigvaldason héraðsdómari, Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari og Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri Hæstaréttar.