Íslensk stjórnvöld leggja það í hendur EFTA-dómstólsins að ákveða hvort meðalganga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins verði leyfð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en svar var sent dómstólnum í dag. Eins og fram hefur komið hefur framkvæmdastjórn ESB óskað eftir meðalgöngu í Icesave-málinu, sem rekið er gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum. Framkvæmdastjórnin hefur ekki áður nýtt sér heimild til að styðja Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, fyrir meðalgöngu.

Svar íslenskra stjórnvalda er byggt á ráðgjöf aðalmálflytjandans í málinu, Tim Ward, og málflutningsteymisins sem skipað var honum til ráðgjafar.

„Meginmunurinn á meðalgöngu og skriflegri greinargerð er sá að stjórnvöld munu eiga þess kost að svara sérstaklega afstöðu sem fram kemur við meðalgöngu en þess er ekki kostur þegar hún kemur eingöngu fram í skriflegri greinargerð. Þegar til þess er litið hversu stór hluti málsmeðferðar fyrir EFTA-dómstólnum er skriflegur er það verulegur ókostur fyrir aðila málsins að geta ekki svarað öllum fram komnum gögnum á sama hátt, en munnlegur málflutningur er yfirleitt tiltölulega stuttur og ræðutími að jafnaði ekki lengri en 30 mínútur.

Aðalmálflytjandinn og málflutningsteymið hafa fjallað ítarlega um málið. Mörg sjónarmið komu þar til skoðunar en þegar til þess var litið að málflutningi framkvæmdastjórnarinnar yrði ekki á annan hátt svarað skriflega var það einróma niðurstaða þeirra að það þjónaði best hagsmunum Íslands að leggjast ekki gegn meðalgöngu hennar í málinu.,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Þess vegna sé það lagt í hendur dómstólsins að ákveða hvort meðalganga framkvæmdastjórnarinnar verði leyfð.

Jafnframt er rétturinn hvattur til að endurskoða meðferð skriflegra greinargerða fyrir dómstólnum, með það fyrir augum að gera aðilum kleift að svara þeim skriflega, hvort heldur þær stafa frá framkvæmdastjórn ESB eða aðildarríkjum.

„Af hálfu stjórnvalda er að þessu leyti ástæða til að fagna því tækifæri sem annars hefði ekki skapast til að draga athyglina að þessum annmarka á málsmeðferð EFTA-dómstólsins og vonir bundnar við að dómstóllinn taki athugasemdir stjórnvalda í þessa veru til greina. “