Sérfræðingar í fjármálastofnunum á borð við JP Morgan og Punk Ziegel, hafa gefið út þá skoðun að slæmt árferði í fjárfestingabankastarfsemi verði til þess að draga muni úr hagnaði þeirra á næsta ári. Í gær lýsti JP Morgan yfir versnandi horfum fyrir Goldman Sachs, Lehman Brothers, Morgan Stanley og Merrill Lynch, að því er Dow Jones-fréttaveitan greinir frá.

Nánar er fjallað um horfur í fjárfestingabankastarfsemi í erlendur fréttum Viðskiptablaðsins.