Sveinn Þór Stefánsson hefur verið ráðinn forstjóri Existu. Sveinn var áður framkvæmdastjóri fjármálasviðs félagsins.

Magnús Magnússon, nýskipaður stjórnarformaður Existu, staðfesti ráðninguna við Viðskiptablaðið í gær.

Fyrrum forstjórum Existu, Sigurði Valtýssyni og Erlendi Hjaltasyni, var sagt upp störfum fyrir um tíu dögum. Þeir voru einnig látnir segja sig úr stjórnum dótturfélaga.

Á sama tíma var slitið á öll tengsl Existu við bræðurna Lýð og Ágúst Guðmundssyni, en þeir hafa verið aðaleigendur félagsins um árabil.