Síldarvinnslan hefur komist að samkomulagi um kaup á 34,2% hlut í norska laxeldisfyrirtækinu Arctic Fish Holding AS. Kaupverðið er 1.089 milljónir norskra króna eða sem nemur 14,8 milljörðum íslenskra króna á gengi dagsins. Til samanburðar er markaðsvirði Síldarvinnslunnar ríflega 162 milljarðar króna.

Útgerðarfélagið greiðir fyrir hlutinn með reiðufé sem verður að hluta til fjármagnað með öflun lánsfjár. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Fram kemur að Síldarvinnslan hafi gengið frá samkomulagi við Bremesco Holding Limited ásamt hópi hluthafa, sem eiga samanlagt 10.899.684 hluti, eða 34,2%, í Arctic Fish Holding AS um kaup á hlutum þeirra í félaginu.

Arctic Fish er skráð á Euronext Growth Market í Osló og á félagið 100% hlutafjár í Arctic Fish ehf. sem er eitt af stærstu laxeldisfyrirtækjum á Íslandi og rekur eldisstöðvar á Vestfjörðum þar sem félagið er með rúmlega 27 þúsund tonna leyfi fyrir eldi í sjó.

Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar:

„Laxeldi er ört vaxandi atvinnugrein sem við höfum fylgst með á undanförnum árum. Aukið fjármagn og þekking hefur komið inn í greinina á síðustu árum og við teljum vera mikil tækifæri til staðar.

Við kaupum rúmlega þriðjungshlut í Arctic Fish Holding AS, sem er í meirihlutaeigu norsks fiskeldisfyrirtækis þar sem er mikil þekking og reynsla í greininni. Við fögnum því að fá tækifæri til að vinna með þeim við eflingu félagsins.

Félagið hefur metnaðarfull áform og hefur verið í miklum fjárfestinga- og uppbyggingarfasa á síðustu árum. Við sjáum tækifæri í auknu samstarfi fiskeldisfyrirtækja á svæðinu.“