© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Niðurstöður rannsóknar um íslenkan vinnumarkað sýna að 10,8% launa breytast að jafnaði í hverjum mánuði. Lengd launasamninga, þ.e. sá tími sem líður milli launabreytinga, er að meðaltali 8,9 mánuðir. Enn fremur sýna niðurstöður rannsóknarinnar að launaákvarðanir fylgja greinilegu mynstri; flestir einstakir launasamningar eru til 12 mánaða og helmingur launabreytinga á sér stað í janúar.

Fátítt er að nafnlaun lækki, en aðeins um 0,5% mánaðarlegra launabreytinga eru nafnlaunalækkanir. Hins vegar sýna niðurstöðurnar að launalækkanir eru tengdar hagsveiflunni þar sem bæði tíðni og stærð launalækkana hefur jákvæða fylgni við atvinnuleysi. Niðurstöður benda því til tregbreytanleika nafnlauna niður á við en að hann sé þó ekki algjör þannig að launalækkanir hafi átt þátt í aðlögun á íslenskum vinnumarkaði í kjölfar áfalla.

Þá sýna niðurstöður rannsóknarinnar að launaákvörðunum á íslenskum vinnumarkaði megi lýsa með hagfræðilegu líkani þar sem launaákvarðanir eru háðar tíma og launabreytingar eiga sér stað með reglubundnu millibili.

Þetta kemur fram í rannsóknarritgerð Seðlabanka Íslands sem nefnist „Evidence of nominal wage rigidity and wage setting from Icelandic microdata“. Höfundar eru Jósef Sigurðsson og Rannveig Sigurðardóttir.  Í ritgerðinni er notast við ítarleg gögn um laun á íslenskum vinnumarkaði til þess að varpa ljósi á launaákvarðanir og leggja mat á stífni nafnlauna.