Saga Capital Fjárfestingarbanki hf. og Icelandair Group hf. hafa gert samning sín á milli um að Saga Capital gerist viðskiptavaki með hlutabréf í Icelandair Group hf., fyrir eigin reikning Saga Capital. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þar kemur fram að tilgangurinn með viðskiptavakt Saga Capital er að efla viðskipti með hlutabréf í Icelandair Group og stuðla að skilvirkri og gegnsærri verðmyndun hlutabréfa í félaginu.

Hlutabréf Icelandair Group eru skráð á OMX Nordic Exchange á Íslandi. Samningurinn tekur gildi í dag og er ótímabundinn en uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara.

Skilmálar viðskiptavaktarinnar eru eftirfarandi:

- Saga Capital mun setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Icelandair Group (ICEAIR) að lágmarki 1.000.000 að nafnverði á verði sem Saga Capital ákveður í hvert skipti.

- Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,0%;

- Frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%;

- Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern skal vera kr. 100.000.000,- að
markaðsvirði.