Öll hlutabréf sem er í íslensku kauphöllinni hafa hækkað í dag, utan Haga sem hafa staðið í stað og Össurar en engin viðskipti hafa verið með þau.

Hlutabréf Marel hafa hækkað um 3,73%, Vodafone 3,2%, Icelandair 2,19%. Önnur hafa hækkað minna en 1%.

Hlutabréf Marel hafa sveiflast mikið undanfarna viðskiptadaga. Bréf Vodafone hafa hækkað vegna mun betri afkomu félagsins en greiningaraðilar höfðu spáð.