Credit Agricole, þriðji stærsti banki Frakklands, tilkynnti í dag að tap verði á rekstri bankans í ár.

Starfsfólki verður fækkað um 2.350, þar af 850 í Frakklandi.  Bankinn mun jafnframt selja eða leggja niður rekstur sinn í 21 af 53 löndum þar sem bankinn hefur starfssemi.

Miklir erfiðleikar eru í evrópskum bönkum þessi misserin.  Commerzbank tilkynnti í gær að líklega þyrfti bankinn að óska eftir enn frekari stuðningi þýska ríkisins, en ríkið á þegar 25% í bankanum.

Credit Agricole
Credit Agricole