Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 3 milljarða króna árið 2014 eða 0,2% af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í nýjum Hagtíðindum . Til samanburðar var afkoman neikvæð um 32 milljarða króna árið 2013 eða 1,7% af landsframleiðslu.

Tekjur hins opinbera námu um 903 milljörðum króna og hækkuðu um 13,3% milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 45,3% samanborið við 42,4% árið 2013. Útgjöld hins opinbera voru 906 milljarðar króna 2014 og jukust um 9,3% milli ára en hlutfall þeirra af landsframleiðslu fór úr 44,1% í 45,4%.

Hrein peningalega eign hins opinbera sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hækkar þriðja árið í röð. Í lok síðasta árs var hlutfallið -47,2% en lægst var það -53,4% árið 2012. Heildarskuldir hins opinbera námu 113,2% af landsframleiðslu í árslok 2014 en hæst stóð hlutfallið í 126,6% árið 2011.

Afkoman neikvæð um átta milljarða á fjórða ársfjórðungi

Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um 7,7 milljarða króna á 4. ársfjórðungi 2014 eða sem nemur 1,5% af áætlaðri landsframleiðslu ársfjórðungsins og 3,0% af tekjum hins opinbera.

Til samanburðar var afkoman neikvæð um 15,3 milljarða á sama tímabili ári fyrr.