Tekjur ríkissjóðs reyndust 1,3 milljörðum króna hærri á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2011 en á sama tímabili í fyrra. Gjöldin drógust saman um 8,5 milljarða króna á milli ára. Þetta kemur fram í greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir tímabilið.

Í frétt fjármálaráðuneytisins segir að niðurstaðan sé mun betri en gert var ráð fyrir í áætlunum. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 8,9 milljarða króna en var jákvætt um 3,4 milljarða á sama tímabili í fyrra.

Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 82,2 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins og eru það 1,1% meiri tekjur en skiluðu sér á sama tíma í fyrra. Innheimtar tekjur voru einnig töluvert meiri en áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir, eða 6,6 milljörðum króna meiri, og stafar það einkum af meiri innborgunum á tekjuskatti lögaðila, fjármagnstekjuskatti og vaxtatekjum en reiknað var með.

Hér má sjá fréttatilkynning u um greiðsluuppgjör ríkissjóðs þar sem tekjur og gjöld eru meira sundurliðuð.