Baugur Group mun í dag tilkynnna um flutning fyrirtækisins til Bretlands, að því er fram kemur í Daily Telegraph í dag.

Í blaðinu segir að flutningurinn muni gera stjórnarformanni Baugs, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, kleift að sitja áfram í stjórn félagsins eftir að nýlegan dóm hæstaréttar.

Þá segir í Telegraph að Baugur muni selja Haga aftur til fjölskyldu Jóns Ásgeirs.

Fram kemur í fréttinni að félagið muni eftir flutninginn í fyrsta sinn gera upp í pundum. Þar segir ennfremur að flutningurinn muni endurspegla betur eignasamsetningu Baugs, en þrír fjórðu hlutar eigna félagsins séu í Bretlandi.