Teymi hf. hefur gert samning við Kaupþing banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands hf., segir í tilkynningunni.

Kaupþing banki hf. skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll Íslands hf., í Teymi hf. (TEYMI) að lágmarki 500.000 að nafnvirði á gengi sem Kaupþing banki hf. ákveður í hvert skipti.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Kaupþing banki hf. er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 50.000.000,- að markaðsvirði.