Teymi hefur greint frá því að félagið hafi undanfarna mánuði í samstarfi við stærstu kröfuhafa unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Í kjölfar þess hefur stjórn Teymis ákveðið að boða til hluthafafundar þar sem óskað verður  eftir heimild til að hefja formlega viðræður um nauðasamninga.

Stjórnin mun leggja til á hluthafafundi þann 20. apríl að hlutafé núverandi eigenda verði fært niður að fullu og gengið verði til samninga við kröfuhafa með það markmið að þeir eignist félagið segir í tilkynningu.

Í tilkynningu segir að umræddar aðgerðir muni ekki hafa áhrif á daglegan rekstur og þjónustu dótturfélaga Teymis.