Sökum ófullnægjandi seljanleika bréf Teymis verður félagið fjarlægt úr Úrvalsvísitölunni. Breytingin gildi 12. ágúst næstkomandi, að því er segir í tilkynningu Kauphallarinnar.

Sama dag og Teymi birti annars fjórðungs uppgjör sitt var tilkynnt um að félagið stefndi að afskráningu úr Kauphöllinni.

Eftir standa tólf félög í Úrvalsvísitölunni.