Alls var 76 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni 17.-24. febrúar samkvæmt frétt á vef Þjóðskrár Íslands. Þetta er 14 samningum umfram meðaltal síðustu 12 vikna. Af þessum samningum voru 56 um fjölbýli, 15 um sérbýli og 5 um annars konar húsnæði.

Heildarveltan nam 1.941 milljón króna og er meðalvelta samnings því um 25,5 milljón. Meðalvelta undanfarinna 12 vikna er 1.806 milljón króna, eða um 29,1 milljón á samning.

Alls var 11 samningum þinglýst á Suðurnesjum, Akureyri og Árborgarsvæðinu en meðaltal síðustu tólf vikna er 13.