Rekstur slitabúa Glitnis, Kaupþings og LBI hf. hefur frá árinu 2009 kostað meira en 95 milljarða króna. Þar af hafa skilanefndir, slitastjórnir og æðstu stjórnendur slitabúanna greitt sér meira en 5.170 milljónir króna í þóknanir. Í samhengi við verðmat eignasafna þrotabúanna er þó ekki um sérstaklega háar fjárhæðir að ræða, en rekstrarkostnaður slitabúanna er um og yfir 3% af heildarvirði eignasafns þeirra.

Hér ber að benda á að fjárhagsupplýsingar fyrir árin 2009 og 2010 eru ekki aðgengilegar hjá Kaupþingi og árið 2009 er ekki aðgengilegt hjá LBI. Slitabúin hafa bæði neitað að veita Viðskiptablaðinu upplýsingarnar. Rekstrarkostnaður er því meiri en hér er tiltekinn.

Þóknanir rúmar 10 milljónir á mánuði

Meðlimir slitastjórna hafa að meðaltali haft þóknanir sem nema á bilinu 5,5 til 10,6 milljóna króna á mánuði frá því að þeir tóku sæti í stjórnunum. Þannig nam þóknun Steinunnar Guðbjartsdóttur og Páls Eiríkssonar sem dæmi rúmum 255 milljónum árið 2011 fyrir störf í þágu slitabús Glitnis.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .