Tvær nýjar fagnefndir voru nýlega stofnaðar innan Samtaka verslunar og þjónustu, fræðslunefnd og nefnd lítilla fyrirtækja. Formaður fræðslunefndar var kjörinn Thomas Möller framkvæmdastjóri Aalborg Portland Íslandi hf.og varaformaður var kjörin Elín Hlíf Helgadóttir fræðslustjóri Húsasmiðjunnar.

Formaður nefndar lítilla fyrirtækja var kjörinn Engilbert Gíslason framkvæmdastjóri Arnarbergs ehf. og varaformaður Dagbjört Höskuldsdóttir eigandi Verslunarinnar Sjávarborgar í Stykkishólmi.