Þorsteinn Víglundsson, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins kemur til með að leiða lista Viðreisnar í alþingiskosningum október næstkomandi í Reykjavíkurkjördæmi norður. Þorsteinn hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri Álframleiðenda á Íslandi ásamt því að hafa verið forstjóri BM Vallá.

Í öðru sæti listans er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir lögfræðingur. Þriðja sætið skipar Páll Rafnar Þorsteinsson. Í fjórða sæti er Birna Hafsteins, formaður Félags íslenskra leikara.

Var þetta ákveðið af stjórn Viðreisnar. Tekið er fram í tilkynningu frá flokknum að listinn sé fléttur af körlum og konum til jafns.

Hér má sjá lista Viðreisnar í kjördæminu.