Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákærur vegna rannsókna sem tengjast starfsemi Kaupþings.

Þar á meðal eru ákærur á hendur þremur núverandi starfsmönnum Arion banka vegna starfa þeirra fyrir Kaupþing á sínum tíma. Þar á meðal er framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, Björk Þórarinsdóttir.

Í tilkynningu frá bankanum segir að starfsmennirnir þrír hafi allir farið í leyfi frá störfum sínum fyrir bankann.