Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir hefur verið ráðin í starf sölu- og markaðsstjóra VÍS en hún mun hefja störf um miðjan nóvember. Ingibjörg kemur til VÍS frá Icelandair en þar hefur hún starfað frá árinu 2004, síðast sem forstöðumaður þjónustu og notendaupplifana.

Ingibjörg hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum hjá Icelandair Hún starfaði um tíma sem forstöðumaður Icelandair Saga Club, stærsta tryggðarkerfis á Íslandi, og hefur einnig starfað sem svæðisstjóri Icelandair þar sem hún bar ábyrgð á sölu og markaðsstarfi hér á landi.

Ingibjörg kennir námskeiðið „Leiðtogi í þjónustu og upplifunum“ hjá Akademias þar sem kastljósinu er beint að þjónustustjórnun og þjónustuupplifunum. Ingibjörg er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BS gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla.

Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri VÍS:

„Framtíðarsýn VÍS er að verða stafrænt þjónustufyrirtæki sem breytir því hvernig tryggingar virka og fækkar tjónum. Áherslur félagsins hafa verið mótaðar fyrir næstu misseri og snúa meðal annars að því að bæta upplifun viðskiptavina. Ég tel mig hafa þá þekkingu og reynslu til þess að það verði að veruleika. Ég hlakka virkilega til að hefja störf hjá VÍS.“

Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri Stafrænnar þróunar hjá VÍS:

„Ingibjörg Ásdís kemur til okkar með frábæra reynslu og þekkingu sem ég er ekki í nokkrum vafa um að eigi eftir að styrkja okkur enn frekar í þeim verkefnum sem framundan eru. Hún er öflugur og kraftmikill leiðtogi sem ég hlakka mikið til að starfa með.”