Rússar fullgiltu viðauka nr. 14 við Mannréttindasáttmála Evrópu 15. janúar síðastliðinn og hefur það meðal annars í för með sér að kjörtímabil íslensks dómara við dómstólinn lengist um þrjú ár. Því mun Davíð Þór Björgvinsson áfram gegna embætti dómara við Mannréttindadómstól Evrópu til ársins 2013 fyrir Íslands hönd.

Í tilkynningu kemur fram að Evrópuráðið hafði farið þess á þess á leit við dómsmála- og mannréttindaráðuneytið að tilnefnd yrðu af Íslands hálfu þrjú dómaraefni, þar sem kjörtímabil íslensks dómara við dómstólinn átti að renna út 31. október 2010, tæki viðauki nr. 14 ekki gildi áður en kosning dómara færi fram í apríl 2010. Hafði ráðuneytið kallað eftir umsóknum og samþykkti ríkisstjórnin á fundi sínum 12. janúar síðastliðinn að tilnefna Davíð Þór Björgvinsson, núverandi dómara við Mannréttindadómstólinn, Hjördísi Björk Hákonardóttur hæstaréttardómara og Pál Hreinsson hæstaréttardómara, sem dómaraefni af Íslands hálfu við Mannréttindadómstól Evrópu.

Vegna fullgildingar Rússa á viðaukanum kemur því ekki til kosningar á íslenskum dómara á þessu ári heldur framlengist tími Davíðs Þórs Björgvinssonar sjálfkrafa um þrjú ár.