Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hefur birt lista yfir launahæstu leikkonur heims á þessu ári. Leikkonan Jennifer Lawrence trónir á toppi listans með 52 milljónir dala í tekjur, jafnvirði 6,8 milljarða íslenskra króna.

Í öðru sæti listans situr Scarlett Johansson með 35,5 milljónir dala eða rúmlega 4,6 milljarða íslenskra króna. Í þriðja sæti er svo Melissa McCarthy með 23 milljónir króna, jafnvirði tæplega þriggja milljarða íslenskra króna.

Tíu launahæstu leikkonur ársins

1. Jennifer Lawrence - 52 milljónir dala

2. Scarlett Johansson - 35,5 milljónir dala

3. Melissa McCarthy - 23 milljónir dala

4. Bingbing Fan - 21 milljón dala

5. Jennifer Aniston - 16,5 milljónir dala

6. Julia Roberts - 16 milljónir dala

7. Angelina Jolie - 15 milljónir dala

8. Reese Witherspoon - 15 milljónir dala

9. Anne Hathaway - 12 milljónir dala

10. Kristen Stewart - 12 milljónir dala

Lista Forbes má sjá í heild sinni hér.