Nýhugsun ehf. býður nú upp á þjónustu fyrir útilegufólk. Á síðu þeirra, www.rentatent.is , getur fólk leigt sér tjöld á útihátíðum sem bíða uppsett þegar það mætir.

Hægt er að leigja stóla, dýnur og svefnpoka með tjaldinu.

Þessi þjónusta mun einfalda mörgum lífið því tjaldgestir þurfa ekki að sjá um að ganga frá tjaldinu og hafa fyrir því að koma því á staðinn. Þessi þjónusta er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og hugmyndin er að þetta verði nokkurs konar tjaldhótel.