Baldur Guðnason fráfarandi forstjóri Eimskipafélagsins sagði í samtali við vb.is að hann sé búinn að starfa hjá félaginu í fimm ár.

„Ég hef verið með hugann við Eimskipafélagið allan sólarhringinn undanfarin ár og ég tel að það sé kominn tími til að breyta til. Til að byrja með ætla ég að taka mér frí en síðan ætla ég að snúa mér að rekstri Sjafnar á Akureyri sem er fyrirtæki í minni eigu,” sagði Baldur.